0

Karfan er tóm

Sparislaufan 2024

Sparislaufa 2024 er fagurbleikur og skínandi blómakrans fléttaður úr þremur nýútsprungnum blómum. Kransinn samanstendur af vafningum sem vefjast um hvern annan og tákna þannig þá umhyggju og stuðning sem við njótum flest á erfiðum tímum. Styrkurinn felst í samstöðu okkar - saman erum við sterkari.

Sparislaufan er gullhúðað, rósagyllt koparhálsmen í samlitri keðju. Hálsmenið er einstaklega glæsilegur gripur, stílhreinn en um leið djarfur. Hálsmenið kemur í fallegum gjafaumbúðum og er framleitt í takmörkuðu magni.

Hönnuður Bleiku slaufunnar 2024 er Sigríður Soffía Níelsdóttir. Verkefnið hefur persónulega þýðingu fyrir hana, en hún greindist með brjóstakrabbamein árið 2020.