0

Karfan er tóm

Leading Role - rafbók

Velja upphæð

Að greinast með brjóstakrabbamein kollvarpaði lífi Önnu, en skrifin urðu leið hennar í gegnum storminn. Nú vonar hún að saga hennar veiti öðrum innblástur og styrk á erfiðum tímum. 

Með því að kaupa bókina styrkir þú Krabbameinsfélag Íslands og gerir okkur kleift að veita fólki með krabbamein og aðstandendum þess ókeypis ráðgjöf og stuðning sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga og félagsráðgjafa, sinna krabbameinsrannsóknum, fræðslu- og forvarnarstarfi. Þú velur upphæðina og færð sendan hlekk sem veitir aðgang að bókinni. Vinsamlegast athugið að bókin er á ensku og pólsku.

"Hæ, ég heiti Anna. Ég er 37 ára og hef búið á Íslandi í næstum fimm ár. Árið 2024 greindist ég með brjóstakrabbamein og því miður setti það líf mitt og öll áformin sem ég hafði algjörlega úr skorðum.

Nú, næstum tveimur árum eftir greininguna, er ég ótrúlega stolt og þakklát fyrir að geta loksins deilt sögu minni með ykkur. Ég vona að orð mín geti veitt einhverjum styrk, huggun eða nýja sýn í eigin baráttu.

Með því að kaupa bókina mína hjálpar þú einnig til við að styðja fólk sem þarf mest á því að halda. Ég vona að saman getum við látið þennan stuðning ná til sem flestra.

Takk fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi og fyrir að hjálpa til við að gefa sögu minni tilgang sem nær út fyrir mig sjálfa.

Ég vona að þú njótir lestursins. ❤️"