0

Karfan er tóm

Brosbollar Bleiku slaufunnar

litir

Í ár fengum við Studio Hönnu Whitehead til að gera fyrir okkur bleikan bolla. 

Brosbollana (Funny Cup) hefur hún framleitt í nokkur ár við miklar vinsældir en þeir eru allir gerðir í höndunum - mótaðir og málaðir og því enginn bolli eins.
Okkar bollar eru allir með bleiku mynstri í grunninn, annars vegar með doppum og hins vegar með línum og hvert bros með sinn karakter. 

Um hönnuðinn:

Hanna Dís Whitehead (1982) útskrifaðist frá Design Academy Eindhoven árið 2011. Verk hennar eru staðsett á landamærum hönnunar, listar og handverks. Ferlinu er leyft að ráða ferðinni og farið er á milli mismunandi efna svo sem viðar, textíls og keramíkur innan sömu hugmyndar. Hanna Dís hefur sérstakan áhuga á að vekja upp samtal á milli hluta og áhorfenda þar sem hún vefur saman sögum, formi, litum og teikningu. Hún býr og starfar á Hornafirði.