Með Snap Band endurskinsmerkinu næst 360 ° sýnileiki og eykur þ.a.l. líkur á að sjást betur í umferðinni. Það er hægt að smella bandinu utan um hvað sem er.
Endurskinsmerkið er CE merkt og framleitt samkvæmt ströngustu gæðastöðlum (EN13356).
Notkun
1. takið bandið í sundur.
2. komið því fyrir með því að smella utan um það sem á að festa það við.
Inniheldur
2 x Snap band endurskinsmerki.
Endurskinsmerki eiga að vera sýnileg og góð regla er að hafa þau hangandi neðarlega á hliðum, t.d hangandi í rennilás á vösum.
ATH þessi vara er ekki leikfang.
Geymist á þurrum stað, fjarri sólarljósi.
Hreinsið með rökum klút.