



Sigurður Sævar Magnúsarson, myndlistarmaður er hönnuður Mottumarsklúts sem unninn er í samstarfi við Gísladóttur fyrir Krabbameinsfélagið. Sigurður Sævar (1997) hefur á síðustu árum vakið verðskuldaða athygli fyrir viðamiklar sýningar og fjölbreytt verk.
Verkið sem hann valdi fyrir Mottumarsklútinn er úr seríunni Glíma og ber klúturinn nafn seríunnar.
Stærðin er 32x32 cm og passar í vel í vasa.
100% silki
Glíma kemur í takmörkuðu upplagi og allur ágóði rennur til Krabbameinsfélags Íslands.