0

    Karfan er tóm

    Læda slæda - 30x40 cm

    Læda slæda 
    - Æðruleysisbæn fyrir lengra komna!

    Veggspjald í stærðinni 30x40 cm
    innrammað í  sérsmíðuðum svörtum ramma með glampafríu gleri og 70% sólarvörn.

    Texti Prins Póló í heild sinni:

    "Ég sit hérna á klósettinu og er að skeina mér
    og af lyktinni að dæma þá var einhver hérna á undan mér
    sem kláraði allan pappírinn beint á rassinn sinn
    en setti ekki aðra rúllu á klósettpappírsstandinn
    þannig að mér er skapi næst að ganga berserskgang,
    fara með buxurnar á hælunum fram á gang og
    taka þennan skítabuxa upp á eyrunum
    og sýna honum brotabrot af mínum myrku hugsunum, já

    Nú er ég kominn upp í Skeifu með stefnuljósið á
    ætla að leggja í þetta stæði, þetta er stæðið sem ég á
    en þá kemur einhver fauti og leggur beint í það
    Hann lætur bara alveg eins og hann eigi það
    Það sem mér dettur helst í hug er að gefa allt í botn
    og þruma beint í hliðina á honum, ég veit það verður vont
    Klessukeyra drusluna, keyra allt í spað
    en þá fæ ég skínandi uppljómun og vitið þið hvað:

    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda
    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda

    Klukkan er orðin sjö og ég ætla að horfa á fréttirnar
    en þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá eru þær búnar
    Þeim hafði verið flýtt vegna stórmerkilegrar
    og bráðnauðsynlegrar beinnar útsendingar
    Mig langar mest til að taka imbakassann minn
    og fleygja honum út fyrir sjóndeildarhringinn
    en þá man ég eftir því að afborganirnar
    af heimilistryggingunum eru gjaldfallnar

    Svo ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda
    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda
    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda
    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda

    Ég er staddur út í búð og er að kaupa inn
    en röðin er svo löng og bara einn kassi opinn
    en þá opnar skyndilega kassinn við hliðina
    og gaurinn fyrir aftan mig er kominn fremstur í röðina
    Mér er skapi næst að skella honum beint á andlitið
    lárett og löðurmannlega á færibandið,
    setja svo poka utan um hausinn hans
    og senda hann rakleiðis til skrattans

    En ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda
    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda
    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda
    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læd'etta slæda

    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda
    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda
    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læda slæda
    Ég læda slæda, ég læda slæda, ég læd'etta slæda"

    Smelltu hér til að hlýða á lagið