0

    Karfan er tóm

    Handklæði, bleik og hvít, frá Salún - tvær stærðir

    stærð

    Brautin handklæðin eru óður til sígildra röndóttra sundlaugahandklæða. Í munstrinu er leikur með sjónhverfingu e. optical illution en í Jacquard vefnaðnum, sem er tvöfaldur mýkist munstrið fær að njóta sín í textílnum.

    Handklæðin eru tilvalin til daglegra nota, hvort sem það er fyrir sundlaugina, ferðalög, gönguna eða ströndina þar sem þau eru:

    • létt
    • rakadræg
    • þornar fljótt
    • pakkast vel

    Handklæðin eru framleidd í Tyrklandi að hætti hinna tyrknesku Pestemal og Perskir handklæða. Slík handklæði eru notuð í Hammam böðum, aldagamalli baðhefð sem hefur varðveist frá tímum Ottómanveldisins til dagsins í dag.

    Perskir handklæðin (100×60 cm) eru upprunalega ætluð fyrir hárið en Pestemal (90×170 cm) fyrir líkamann.
    Pestemal handklæðin eru einnig tilvalin sem sjöl eða teppi og perskir sem gestahandklæði eða viskastykki.