Útikerti frá Plastiðjunni Bjargi - Iðjulundi á Akureyri.
Kertin eru handunnin úr endurunnu vaxi.
Kerti hafa verið framleidd hjá PBI svo áratugum skiptir. Saga kertagerðarinnar hefst þegar Iðjulundur sem þá hét hóf framleiðslu á hefðbundnum kertum og útikertum. Þessi framleiðsla hefur þróast og aðferðir verið einfaldaðar með árunum en þó er alltaf haldið í þá hugsun að framleiða hágæða kerti.
Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur starfar á grundvelli laga um málefni fatlaðs fólks.