Þinn stuðningur skiptir okkur öllu máli. Starfsemi Krabbameinsfélagsins byggir á söfnunarfé.
Allur ágóði af sölu sokka í Mottumars rennur til vísindastarfs, rannsókna, fræðslu, forvarna og til að veita endurgjaldslausa þjónustu, stuðning og ráðgjöf með námskeiðahaldi og viðtölum við hjúkrunarfræðinga, sálfræðing og félagsráðgjafa.
Mottumarssokkarnir í ár eru hannaðir af íslenska hönnunarfyrirtækinu AS WE GROW. Gréta Hlöðversdóttir, Snæfríð Þorsteins og Kamilla Henriau eru hugmyndasmiðirnir og hönnuðirnir á bakvið sokkana.
Með stuðningi við Krabbameinsfélagið gera einstaklingar og fyrirtæki félaginu kleift að veita fólki með krabbamein og aðstandendum þess ókeypis ráðgjöf og stuðning sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga og félagsráðgjafa, sinna krabbameinsrannsóknum, fræðslu- og forvarnarstarfi.
Öll verkefni Krabbameinsfélagsins miða að því að koma í veg fyrir krabbamein, fækka þeim sem deyja af völdum krabbameina og bæta lífsgæði sjúklinga og aðstandenda þeirra
Þegar þú verslar í vefverslun Krabbameinsfélagsins styrkir þú starf félagsins í þágu þeirra sem greinast með krabbamein og fjölskyldna þeirra.