{"product_id":"nature-is-female-veggspjald","title":"Nature is female - veggspjald","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eNature is female eftir Berglindi Rögnvaldsdóttur.\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eVeggspjald án ramma\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e50x70 cm\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBerglind Rögnvaldsdóttir ljósmyndari hlaut 1. sæti í samkeppni Paper Collective og Epal með verkin Nature is Female og Bubble Gum. \u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBerglind Rögnvaldsdóttir (f.1985) ljósmyndari er fædd og uppalin í Reykjavík, en hefur starfað sl. 7 ár í Osló. Eftir útskrift frá Bilder Nordic school of Photography árið 2018 hefur Berglind tekið þátt í stórum listahátiðum í Noregi; Collective Fashion Art, Fushion Oslo og Nordic Light Festival. Berglind hefur á sínum ferli mikið unnið með verk tengd konum og hvernig samfélagið kyngerir og hlutgerir þær frá unga aldri. Verk hennar hafa ákveðið kvenlegt yfirbragð, og feminíska rödd. Einnig notar hún náttúruna sem myndlíkingu til að mæta kynjapólitík samtímans.\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eUm verkin frá Berglindi:\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e“Verkin sem ég vann fyrir Epal \u0026amp; Paper Collective keppnina eiga það sameiginlegt að snúa að hlýnun jarðar og hlutgervingu kvenkyns líkamanns. Innblásturinn kom frá íslensku náttúrunni og kommentakerfinu á samfélagsmiðlum. Við mannfólkið erum að eyðileggja jörðina, sem við oftar en ekki köllum ,,móðir náttúru” og tölum um í kvenkyni. Samlíking sem í nútíma vestrænum heimi á rætur sínar að rekja í okkar kerfisbundna og inngróna feðraveldi. Þetta hefur bæði kynferðislega og kúgandi tengingu, ýtir undir áframhaldandi umhverfiseyðingu og nauðgunarmenningu og má rökræða að sé einkar lýsandi fyrir samband samfélags okkar við annars vegar náttúruna og hinsvegar kvenkyns líkamann. Þetta hefur sömuleiðis sterka tengingu við þá hugmynd að konur séu enn þann dag í dag ,,lægra settar“ og eitthvað sem eigi að leggja undir sig, rétt eins og náttúran sjálf sem er ávallt gengisfelld og látin víkja fyrir óþrjótandi frekju mannkynsins með tilheyrandi óhugnalegum afleiðingum sem við stöndum frammi fyrir í dag. Verkin eru unnin úr samsettum ljósmyndum af landslagi og nærmyndum af kvenkyns líkamanum. Þar sem þau eru hlutgerð og sameinuð í eina heild, sem deilir sama ákalli um hjálp.\"\u003c\/p\u003e","brand":"Epal","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39935369511046,"sku":"","price":9900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1003\/6750\/files\/NatureisFemale.webp?v=1788438228","url":"https:\/\/vefverslun.krabb.is\/products\/nature-is-female-veggspjald","provider":"Krabbameinsfélagið","version":"1.0","type":"link"}