0

    Karfan er tóm

    Nuddrúlla - The Roller

    The Roller nuddrúllan frá FitCo er nett, sterk og hentar vel jafnt heima sem og í æfingatöskuna. The Roller er hönnuð með þremur mismunandi nuddflötum sem líkja eftir mismunandi nuddaðferðum (lófum, fingrum og fingurgómum). The Roller er hol að innan sem gerir þér kleift að setja t.d. íþróttaföt inn í hana og því tekur rúllan afar lítið pláss í æfingatöskunni.

    Rúllan kjagast ekki með tímanum
    Hefðbundnar frauðrúllur eiga það til að kjagast og mýkjast en The Roller er hönnuð þannig að hún hvorki kjagast né mýkist og þolir allt að 225kg.

    Mismunandi nuddfletir
    Nuddfletir rúllunnar eru þrír en þeir eiga að líkja eftir fingurgómum, fingrum og loks lófum nuddara. Með því að hafa mismunandi fleti á rúllunni eykst blóðflæði enn meira við notkun.

    Stífleiki sem hentar flestum
    Rúllan er gerð þannig að hún henti jafnt byrjendur sem lengri komnum en hún er hvorki of stíf né of mjúk. Þannig geta atvinnu íþróttafólk jafnt sem byrjendur í líkamsrækt notað rúlluna og náð meiri árangri.

    Afhverju að rúlla?
    Með því að rúlla vöðvana brýtur þú niður hnúta sem myndast vegna álags og með því eykur þú blóðflæði til vöðva sem skilar sér í betri endurheimt, betri líðan, auknum liðleika og minni líkum á meiðslum svo eitthvað sé nefnt.