0

    Karfan er tóm

    Boxer sippuband - svart

    • Afar endingargott sippuband frá EliteSRS
    • Legur tryggja mjúkan og hraðan snúning
    • Bandið er heilt í gegn sem eykur endingu
    • Má nota á malbiki
    • Afar auðvelt að stytta bandið

    Boxer sippubandið er hannað fyrir þá sem vilja gott band sem hentar vel í þol- og snerpuæfingar og er því afar sterkt.

    Bandið sjálft er heilkjarna 5mm PVC band sem hægt er að nota á hvaða yfirborði sem er (stétt, viðargólfi o.s.frv.). Bandið snýst um legu sem kemur í veg fyrir að það rekist í handföng og flækist. Handföng eru létt en gífurlega sterk og leyfa mikinn hraða í sippinu.

    Auðvelt er að stytta bandið en það kemur 3m langt svo það hentar öllum sem eru undir 198 cm á hæð. Böndin eru með snap/lock festingum sem auðvelt er að færa til og stytta bandið.